Nemendur í 6.bekk grunnskólanna á Akureyri fara nú á haustdögum í vettvangsferð á sjó á bátnum Húna II. Siglt er meðfram ströndinni að Krossanesi og farið verður yfir ýmislegt tengt hafinu og sjávarlíffræði. Það eru Hollvinir Húna II. sem standa að ferðunum í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Skóladeild Akureyrarbæjar með stuðningi frá Saga Capital.
Í ár munu nemendur fá fræðsluefni afhent sem miðlar fróðleik um hollustuna úr hafinu og þann fjölbreytileika sem matarkistan hafið býður uppá. Fiskispjald verður einnig afhent til að hengja upp í skólastofu þar sem það minnir á hollustuna úr hafinu og það sem þau upplifðu í ferðinni. Sjá nánar á heimasíðu Skóladeildar Akureyrar, www.skoladeild.akureyri.is .



