Föstudaginn 16. maí var formlega tekinn í notkun í kennslueldhúsi Lundarskóla búnaður fyrir fatlaða nemendur. Um er að ræða vinnuborð með breytanlegri hæðarstillingu og bökunarofni með hliðarhengslum á hurð og brautum fyrir bökunarplötur. Í vinnuborðinu er vaskur og spansuðuhella. Spansuðuhellur hitna mjög lítið og eru því ákjósanlegar í kennslueldhús. Þessi búnaður nýtist ekki bara fötluðum heldur hentar hann öllum vel, sérstaklega yngri nemendum. Anna María Malmquist iðjuþjálfi hannaði breytingarnar. Í tilefni af þessum áfanga var haldið boð sem Sigrún María Óskarsdóttir nemandi í skólanum og Sigríður Jakobsdóttir heimilisfræðikennari undirbjuggu. Sýndi Sigrún María hvernig aðstaðan nýtist henni og svo var sest að veisluborði.
Polls
Loading ...Aftur til fortíðar

Fréttaskot Akureyri.net
-
Veist þú um efni í áhugaverða frétt sem á erindi við Akureyringa? Ekki hika við að hafa samband.
Ritstjóri Akureyri.net:
Páll Jóhannesson
netfang: pallijo@akureyri.net-
Nýlegar færslur
Áhugaverðar síður
Starfatorg
© 2004 - 2012 Akureyri.net | Ráðhústorgi 1 | 600 Akureyri | Sími: 862 1818 | akureyri@akureyri.net | Útgefandi: Pedromyndir ehf
Twitter Facebook Flickr You Tube


