Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk er haldin í ellefta sinn á þessu skólaári. Að vanda hófst verkefnið með samstilltu átaki í öllum þátttökubekkjum á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Frá þeim degi og fram í mars lögðu kennarar sérstaka rækt við vandaðan upplestur og framsögn í bekkjum sínum, leiðbeindu nemendum og gáfu þeim færi á að lesa upp við ýmis tækifæri, bæði innan skóla og utan.
Lokahátíð upplestrarkeppninnar er þriðjudaginn 8. apríl n.k. kl. 17–19 í Menntaskólanum á Akureyri, en þar keppa til úrslita grunnskólar Akureyrar.
Meðfylgjandi er dagskrá keppninnar en námari upplýsingar má finna á http://www.ismennt.is/vefir/upplestur/




