Opinn fundur skólanefndar Akureyrarbæjar

Skrifað 15. nóvember 2007 klukkan 10:53 | | Grunnskólar | Senda á Facebook |

Skólanefnd boðar til opins fundar um málefni leikskóla og grunnskóla í Giljahverfi á Akureyri í sal Giljaskóla þriðjudaginn 20. nóvember kl. 20.00–22.00. Fjallað verður m.a.um stöðu skólanna í dag og líklega þróun næstu árin, áherslur skólanna, umhverfi þeirra – aðgengi, umferðarmál o.fl.

Á fundinum verða nokkur stutt innlegg en síðan gefst tækifæri til umræðu. Tilgangur fundarins er að heyra í foreldrum, starfsmönnum og öðrum bæjarbúum um málefni skólanna og safna þannig efni í sarpinn fyrir frekari stefnumótun um starfsemi þeirra.

Athugaemdir