Nemendur Grunnskólans í Hrísey tóku í dag á móti fyrstu verðlaunum í Raunveruleiknum í útibúi Landsbankans á Akureyri. Leikurinn stóð í fjórar vikur í október og nóvember og fengu nemendur Grunnskólans í Hrísey flest stig að meðaltali.
Raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur, hannaður sem fjármála- og neytendafræðsla í efsta bekk grunnskóla. Í leiknum fá nemendur innsýn í þær ákvarðanir sem venjulegur þjóðfélagsþegn þarf að taka á lífshlaupi sínu og hvaða tækifæri og hindranir verða á vegi hans í lífinu. Þátttakendur setja sig í ákveðin spor og móta lífshlaup sitt í sem raunverulegustu aðstæðum, óháð sinni raunverulegu stöðu.
Samstaða nemenda í Grunnskólanum í Hrísey var mikil og lögðu allir 9. og 10. bekkingar (sem eru 5 nemendur) sig fram við að gera sitt besta. Það er því sannkallað gleðiefni í ekki stærri skóla að nemendur vinni til fyrstu verðlauna, en alls tóku um 1300 nemendur í 10. bekk vítt og breitt af landinu þátt í leiknum.


