Samsöngur í Brekkuskóla

Skrifað 06. október 2007 klukkan 11:11 | | Grunnskólar | Senda á Facebook |

Nemendur Brekkuskóla syngja reglulega á sal skólans undir dyggri stjórn Arnórs tónmenntakennara. Það hefur reynst vel að brjóta upp skólastarfið reglulega og sveigja út af stundaskrá og ljóst að nemendum líkar það vel. Þemadagar, söngvakeppnin “Brekkuvision”, útivistardagar og árshátíðir eru einnig dæmi um slíkt en kennarar hafa einnig verið duglegir að drífa krakkana á listasöfnin í nágrenni skólans og fara í gönguferðir samhliða bóklegu námi, segir á vef Brekkuskóla, þaðan sem myndin er fengin.

Athugaemdir