Kynning á starfi stéttarfélaga

Skrifað 02. maí 2007 klukkan 02:24 | | Grunnskólar | Senda á Facebook |

Undanfarin ár hafa starfsmenn Einingar-Iðju heimsótt alla 10. bekkinga á Eyjafjarðarsvæðinu og haldið kynningu á starfi stéttarfélaga. Nýlega var Matthildur Sigurjónsdóttir, varaformaður félagsins, með slíka kynningu í grunnskólanum í Ólafsfirði. Þetta var þriðja kynningin sem haldin var í ár, áður var búið að fara í grunnskólann á Grenivík og í Þelamerkurskóla. Aðrir grunnskólar á svæðinu verða heimsóttir á næstunni, segir í frétt á heimasíðu Einingar-Iðju.

Í þessum heimsóknum er dreift bæklingi sem er sérstaklega ætlaður ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði, kynnt er fyrir nemendum í hverju starf stéttarfélaga er fólgið og um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Með bæklingnum býður verkalýðshreyfingin allt ungt fólk velkomið í hóp félaga sinna og heitir því liðsinni sínu og væntir einnig þátttöku ungs fólks í félagslegu starfi hreyfingarinnar.

Þetta verkefni er nú í gangi níunda árið í röð og að sögn Matthildar Sigurjónsdóttur, varaformanns félagsins, er greinilegt að þessar heimsóknir eru farnar að skila sér, því yngri félagsmenn virðast vita betur um réttindi sín og skyldur en áður og vita einnig hvert leita skal ef eitthvað bjátar á.

Matthildur sér að mestu um þessar kynningar, ásamt Þorsteini E. Arnórssyni, starfsmanni félagsins. Sjá www.ein.is en þaðan er myndin einnig fengin.

Athugaemdir