Saga Menntaskólans á Akureyri, fjórða bindi, er að koma út þessa dagana. Föstudaginn 13. júní klukkan 10.30 verða opnaðir fyrstu kassarnir af þessu nýja bindi og fyrstu eintökin afhent.
Saga MA kom út í þremur bindum í tilefni að 100 ára afmæli skólans árið 1980, þegar eitt hundrað ár voru liðin frá endurvakningu hins norðlenska skóla á Möðruvöllum í Hörgárdal 1880 og fimmtíu ár voru liðin frá því skólinn fékk
leyfi til að brautskrá stúdenta 1930.
Fjórða bindið spannar söguna frá því um 1980 fram um 2005, eða næsta aldarfjórðunginn eftir fyrstu bindin þrjú.
Ritstjóri þessa bindis Sögu MA er Jón Hjaltason en ritnefnd ásamt honum skipuðu Jón Már Héðinsson skólameistari, Sigríður Steinbjörnsdóttir, Úlfar Hauksson og Valdimar Gunnarsson. Myndaritstjórn annaðist Sverrir Páll Erlendsson og Lára Ólafsdóttir gerði skrár. Tryggvi Gíslason fyrrverandi skólameistari safnaði efni til sögunnar og ritaði drjúgan hluta hennar.
Útkomu bókarinnar hefur seinkað nokkuð því vinnsa hennar tók heldur lengri tíma en til stóð. Margir hafa þegar greitt fyrir bókina og í bókarlok er Tabula gratulatoria með nöfnum áskrifenda. Bókin verður til sölu í tengslum við Skólahátíð MA eftir helgina.



