144 brautskráðir frá VMA

Skrifað 29. maí 2008 klukkan 09:32 | | Framhaldsskólar | Senda á Facebook |

Verkmenntaskólinn á Akureyri útskrifaði 144 nemendur frá skólanum á laugardaginn var. Í ræðu sinni kom Hjalti Jón Sveinsson skólameistari meðal annars inn á að þó skólinn væri nú opinberlega fullbyggður, þá væri ljóst að aðsókn að honum væri það mikil að enn þurfi að byggja nýjar álmur og nú stendur til að byggja sérstaklega yfir starfsbrautina.  Hjalti Jón talaði einnig um ný framhaldsskólalög og nýja, litla framhaldsskóla hér og þar um landið. Ræðu Hjalta Jóns má lesa á síðu Verkmenntaskólans, www.vma.is

Athugaemdir