Einhver mesta tilbreyting í starfi Menntaskólans á Akureyri er Ratatoskur, opnir dagar. Ratatoskur verður á mánudag og þriðjudag. Kennt er samkvæmt stundaskrá fyrstu tvo tímana báða dagana en að því loknu er stundaskránni varpað fyrir róða. Þá standa nemendum til boða fjölmörg námskeið og fyrirlestrar. Þeir þurfa að safna stigum í þessari dagskrá og skila lágmarksfjölda eininga. Enginn ætti að vera í vandræðum með að skila yfirfullu korti því tækifærin eru afar mörg, eins og sjá má ef dagskráin er skoðuð á vef nemenda, muninn.is.
Það er stjórn Hugins, skólafélags MA, sem skipuleggur og undirbýr þessa viðamiklu dagskrá.
Frétt af www.ma.is



