Í löngu frímínútum í gær komu góðir gestir og færðu Menntaskólanum á Akureyri hina miklu og fögru Borgundarhólmsklukku úr búi Sigurðar skólameistara. Sigurður Guðmundsson var skólameistari á árunum 1921-1948, en veturinn 1927-28 gáfu nemendur og kennarar skólans honum þessa klukku í tilefni af fimmtugsafmæli hans. Um þetta leyti var einnig farið að brautskrá stúdenta frá skólanum. Klukkan var á heimili þeirra Sigurðar skólameistara og Halldóru Ólafsdóttur, en kom við fráfall þeirra í hlut sonar þeirra, Guðmundar Ingva Sigurðssonar og konu hans Kristínar Þorbjarnardóttur. Þau færa skólanum klukkuna að gjöf til minningar um Sigurð og Halldóru, og jafnframt silfurskjöld með upphleyptri mynd af skólanum, sem nemendur skólans gáfu Sigurði skólameistara sjötugum síðasta starfsár hans, veturinn 1947-1948, skrifar svp á heimasíðu MA.
Þar segir ennfremur: „Börn Guðmundar Ingva og Kristínar, Þórunn, Þórður Ingvi og Sigurður afhentu gripina góðu og með þeim í hópi var Sigurður Ólafsson kennari, en þau eru bræðrabörn. Alnafni Sigurðar skólameistara, Sigurður Guðmundsson landlæknir hafði orð fyrir hópnum og vonaðist til að þessi gamla en góða klukka flytti skólanum góðan anda. Jón Már skólameistari þakkaði góðar gjafir og bað nemendur að finna klukkunni stað þar sem hún myndi njóta sín best.“



