Þorsteinn E. Arnórsson þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju er um þessar mundir að kynna réttindi og skyldur á vinnumarkaði fyrir yngstu nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri. Þorsteinn mun fara í 13 heimsóknir í skólann, en hver heimsókn stendur yfir í tvær kennslustundir. Þetta er sjötta árið í röð sem félagið er með slíka kynningu í skólanum og segir Þorsteinn að starfsmenn Einingar-Iðju hafi tekið eftir mikilli breytingu til batnaðar hvað unga fólkið er orðið virkara hvað þessi mál snertir. “Það veit nú betur hvar það á að spyrjast fyrir um réttindi sín og eins vita þau mun betur en áður hverju þau eiga rétt á. Þegar krakkarnir fara út á vinnumarkaðinn þá skiptir miklu máli að þekkja og vita um réttindi sín.” Frá þessu er greint á vef Einingar-Iðju, þaðan sem myndin er fengin.
Þorsteinn segir að í þessum heimsóknum sé farið yfir gildi þess að vera í stéttarfélögum og eins er farið yfir almenn réttindi og skyldur á vinnumarkaði. “Undirtektir unglinganna eru mjög góðar og skapast oft góðar umræður um þessi mál,” segir Þorsteinn og bætir við að þessi fræðsla skipti heilmiklu máli. “




