Árshátíð MA í kvöld

Skrifað 30. nóvember 2007 klukkan 04:36 | | Framhaldsskólar | Senda á Facebook |

Í kvöld fer árshátíð Menntaskólans á Akureyri fram í Íþróttahöllinni. Hátíðin er glæsileg og allur undirbúningur hennar er á höndum nemenda sjálfra og tekur nokkrar vikur, þegar allt er talið, að því er fram kemur í tilkynningu. Tugir nemenda vinna að skreytingum og margir hópar nemenda vinna að því að semja og æfa alls kyns skemmtiefni, hljóðfæraleik, dans, söng og leik. Aðrir hópar sjá um að skipuleggja veislusalinn í höllinni, leggja á borð og skreyta, tæknimenn sjá til þess að allir fái notið þess sem í boði verður. Öll þessi störf eru undir regnhlíf stjórnar Hugins, skólafélags MA. Formaður Hugins, inspector scholae er Vilhjálmur Bergmann Bragason.

Rétt er að nefna að í ár er 80 ára afmæli skólafélagsins Hugins og því verður árshátíðin enn stórbrotnari en venjulega. Hátt í þúsund manns, nemendur, kennarar og starfsfólk, munu mæta í hátíðarbúningi í höllina og njóta kvöldsins saman. Veitingahúsið Bautinn sér um matinn, en nemendur sjá um að þjóna til borðs, leika tónlist undir borðum og flytja skemmtidagskrá. Kvöldinu lýkur svo með dansleik en þar leikur hljómsveitin Gus Gus fyrir dansi í aðalsal, en Þuríður formaður og hásetarnir leika fyrir gömlum dönsum á efri hæðinni.

Árshátíð MA er stærsta vímulausa hátíð sem haldin er árlega á Íslandi. Hugtakið vímulaus hátíð þýðir í Menntaskólanum á Akureyri að þátttakendur hvorki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á hátíðinni né koma þangað eftir að hafa neytt þeirra annars staðar. Það er fréttnæmt, segir í tilkynningunni, og hlýtur að teljast til góðra frétta. Góðar fréttir af ungu fólki eru ekki síður fréttir en þegar einhver vandræði koma upp. Nemendur MA telja það forréttindi að fá tækifæri til að njóta vímulausrar stórhátíðar þegar eðlilegt er talið að fólk á þessum aldri skemmti sér með öðru móti.

Athugaemdir