Starfsbrautin vann

Skrifað 13. nóvember 2007 klukkan 05:55 | | Framhaldsskólar | Senda á Facebook |

Nemendur VMA tóku þátt í söngvakeppni starfsbrauta framhaldsskóla á Selfossi sl. fimmtudag. Níu lið öttu kappi og er skemmst frá því að segja að framlag Verkmenntaskólans, lagið „Ég er eins og ég er”, bar sigur úr býtum.

Um 20 nemendur fóru létt með það að flytja litskrúðugt og líflegt atriði á sviði og nutu dyggrar aðstoðar annarra nemenda og starfsfólks brautarinnar sem fóru á kostum í stuðningi sínum, segir á www.vma.is

Athugaemdir