Hvenær sérðu ljósið, Möller?

Skrifað 26. september 2008 klukkan 08:16 | Helgi Már | Pólitík | Senda á Facebook |

eftir Friðrik Sigurðsson.

Enn og aftur verðum við Norðlendingar vitni af því hversu ómögulegur flugvöllurinn á Akureyri er til millilandaflugs því ítrekað hefur orðið að vísa vélum annað.  Þeir sem ætla að nota flugvöllinn á Akureyri til millilandaflugs geta því átt von á því að sitja í rútum í þrjár klukkustundir til Egilsstaða. 

Í Aðaldal við Húsavík er besti flugvöllur á Norðurlandi.  Besti flugvöllur Norðurlands til millilandaflugs og trúlega best staðsetti flugvöllur Norðurlands ef tillit er tekið til erlendra gesta sem koma norður og ætla að skoða náttúruperlurnar í Þingeyjarsýslu.

Samgönguráðherra Kristján Möller hafnaði hugmyndum mínum um að efla Aðaldalsflugvöll og sagðist aðeins ætla að styðja flug á Akureyri. 

Er ekki komin tími til að skipta um skoðun Kristján? Leggjumst á árarnar og hefjum undirbúning á millilandaflugvelli í Aðaldal.

Vaðlaheiðargöng
Þegar göngin verða tilbúin þá geta Akureyringar rennt sér á 30 mínútum á góðan alþjóðaflugvöll sem verður alltaf opinn, ólíkt þeim sem nú er til staðar í löngum Eyjafirði með þrönga fjallgarða til beggja hliða og háa fjallatoppa til suðurs.

Möller, sjáðu nú ljósið og vertu með!

Friðrik Sigurðsson er sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi, búsettur á Húsavík.

 

Lokað fyrir athugasemdir.