Leiðari: Atvinna fyrir alla

Skrifað 01. maí 2009 klukkan 10:05 | | Pistlar | Senda á Facebook |

Örlygur Hnefill Örlygsson

Örlygur Hnefill Örlygsson

Örlygur Hnefill Örlygsson ritstjóri skrifar:
Verkafólk um heim allan fagnar í dag baráttudegi sínum. Í þetta sinn er fagnað í skugga atvinnuleysis og versnandi efnahagsástands. Sjaldan í seinni tíð hefur þó verið meira tilefni til að berjast fyrir réttlæti og jöfnuði í samfélagi mannanna. Óhófssemi liðinna ára hefur leitt okkur inn í skeið erfiðleika en þegar allt kemur til alls verður það alþýðan og verkafólkið sem mun skapa þau verðmæti sem leiða þjóðir heims aftur til betri tíma.

Það voru því miklar gleðifregnir sem bárust í gær, að stjórnendur Samherja skyldu verðlauna starfsfólk sitt með 55 þúsund króna launauppbót í lok mánaðar. Fréttir sem þessar eru því miður fáheyrðar og oft virðist manni að fyrirtækin sjái ekki þann auð sem liggur í starfsfólki þeirra.

Þau réttindi sem barátta verkafólks hefur skilað hafa kostað miklar fórnir. Því má aldrei gleyma. Í dag skulum við safnast saman við Alþýðuhúsið og sýna það þrek og þann baráttuanda sem í okkur býr. Slagorð dagsins eru Atvinna fyrir alla og fyrir henni þarf að berjast. Látum þau orð óma um bæinn í dag. Við erum samfélagið og það er okkar verkefni að tryggja að það sé réttlátt.

Akureyri.net óskar verkafólki til hamingju með baráttudaginn!

Lokað fyrir athugasemdir.