eftir Helga Má Barðason.
Lífið gengur sinn gang og allt er breytingum háð. Þar eð ég hef nú látið af störfum sem ritstjóri frétta- og upplýsingavefjarins Akureyri.net vil ég þakka samferðafólki mínu, lesendum og samstarfsmönnum, ánægjulega samvinnu á þessum frumbernskuárum vefjarins. Það er von mín að Akureyri.net lifi og dafni lengi enn – með dyggri aðstoð lesenda og þeirra sem láta sig málefni Akureyrar og nágrannabyggðanna varða.
Höfundur er þýðandi og uppgjafaritstjóri.



