Aftur til fortíðar

Senda á Facebook

Hér gefur að líta mannlífsmyndir frá Akureyri á árunum 1970 til 2000. Myndirnar eru birtar með leyfi Minjasafns Akureyrar en þær birtust flestar á síðum Dags á sínum tíma.


1987 » Sveinn Bjarman hjá dekkjaverkstæði Höldurs á Akureyri var búinn að skipta um dekk á 70 bílum þennan októberdag árið 1987 þegar ljósmyndari dagblaðsins Dags leit við. Sveinn er enn að.


1995 » Þær stöllur Steinunn Erla Thorlacius, Hildur Friðriksdóttir, Laufey Hrólfsdóttir og Harpa Friðriksdóttir héldu tombólu til styrktar Sophiu Hansen sumarið 1995.


1988» Þórgnýr Dýrfjörð í hlutverki sjúklingsins og Þorgeir Tryggvason í hlutverki læknissins á frumsýningu Leikfélags MA á leikverkinu Kertalog vorið 1988.


1992 » Unnið að verkun skinna á Gleráreyrum þar sem verslunarmiðstöðin Glerártorg stendur nú.


1987 » Miðbær Akureyrar sumarið 1987 eins og margir muna hann. Margt hefur breyst á rúmum 20 árum.


1989 » Gestur Davíðsson og Ingólfur Gíslason bakarar hjá Brauðgerð KEA með bolludagsbollurnar árið 1989


1994 » Þráinn Karlsson og Sunna Borg í Samkomuhúsinu á Akureyri í janúar 1994.


Hús Sparisjóðsins rís í miðbæ Akureyrar. Í fjarska má sjá að einnig er verið að reisa Fuji húsið þar sem Subway og Ríkisútvarpið eru meðal annarra til húsa núna. Þá er Crown chicken merkið enn á sínum stað. Þessi mynd er ekki merkt ártali og ef einhver veit hvenær hún er tekin væri gaman að fá póst á akureyri@akureyri.net


1987 » Hörður Geirsson í Ljósmyndasafni Akureyrar á vormánuðum 1987. Í þessu herbergi fundu blaðamenn Akureyri.net þann mikla fjársjóð sem mun birtast lesendum á þessari síðu og eru Minjasafni Akureyrar færðar miklar þakkir fyrir aðstoð og leyfi til birtinga á myndunum.