LMA frumsýnir söngleikinn Drama Lama – Dalai Lama

30.03.11 22:23 | | Framhaldsskólar, Menning, Skólar, Sýningar | Senda á Facebook |
Silja Björk formaður LMA 2010-2011  |  Mynd: SE

Silja Björk formaður LMA 2010-2011 | Mynd: SE

„Það er gríðarleg spenna í hópnum. Þetta er búið að vera erfitt en það er gott að erfiðið er að fara að skila sér núna á föstudaginn“, sagði Silja Björk Björnsdóttir, formaður Leikfélags Menntaskólans á Akureyri, LMA. Næstkomandi föstudag mun LMA frumsýna söngleikinn Drama Lama – Dalai Lama í Rýminu.

Strangar æfingar hafa staðið yfir upp á síðkastið en að sögn Silju hefur allt gengið vel og er hún ánægð með hópinn. „Ég er búin að vera í leikfélaginu í 3 ár og þetta er besti hópur sem hefur verið í leikfélaginu. Allir mjög fagmannlegir og hlýða því sem þeim er sagt að gera og koma með nýjar hugmyndir. Mjög heilsteyptur og flottur hópur“

Verkið fjallar um 18 ára dreng að nafni Daníel sem lifir í hálf súrealískum heimi þar sem foreldrar hans eru ekki mjög metnaðarfullir fyrir hans hönd þegar hann reynir að ákveða hvað hann ætlar að verða í framtíðinni. Vinir hans eru gríðarlegir útlitsdýrkendur og verkið gerir grín að útlitsdýrkun samtímans. „Við erum með lög alls staðar að, bæði rokk- og popplög sem við erum búin að setja í nýjan búning. Þetta er bara gaman“, segir Silja.

Verkið er sett upp í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. LMA fær afnot af Rýminu og aðstoð hvað varðar hljóð og ljós – einnig eru smiðir LA nemendum innan handar. Í staðinn fær LA prósentu af miðasölunni.

Það eru 5 sýningar á dagskrá og er uppselt á frumsýninguna núna 1. apríl. „Það eru örfáir miðar lausir á sýningarnar á laugardaginn og sunnudaginn svo það er um að gera að tryggja sér miða í tíma á miði.is eða í gegnum Hof.“ segir Silja.

Athugasemdir