Hljómsveitin Hvanndalsbræður sem hefur verið starfandi frá árinu 2002 gerir nú róttækar breytingar á rekstrinum og fækkar starfsmönnum um 20%. Mikil óregla hefur einkennt hljómsveitina nánast frá upphafi en þó hafa meðlimir einn af öðrum verið að frelsast til betri vegar sem þó hefur myndað gríðarlega spennu innan hljómsveitarinnar, þannig hefur Rögnvaldur Gáfaði ekki tekið í mál að minnka drykkju sína á tónleikum, æfingum eða stúdíóvinnu þrátt fyrir beiðni um annað. Sprakk svo nánast samstarfið í loft upp þegar Valmar Hvanndal óskaði eftir því að hljómsveitin færi með stuttar bænir fyrir tónleika og mátti teljast mildi að hljómsveitin kláraði tónleika sína það kvöldið, en það ku hafa komið fyrir að hljómsveitin hafi ekki getað klárað alla sína tónleika vegna ýmissa uppákoma. Rögnvaldur Gáfaði hefur verið í hljómsveitinni frá upphafi sem kassagítarleikari og aðallagahöfundur bandins en hann hefur nú ákveðið að yfirgefa hljómsveitina, finnst honum nóg um aumingjaskapinn í bandinum og líkir hljómsveitinni við litla skátadrengi með bein um hálsinn. Hann hefur þó í hyggju að starfa áfram sem sérlegur ráðgjafi og hirðskáld hljómsveitarinnar, svona svo hljómsveitin endi ekki í ömurlegu Boy Bandi eins og Rögnvaldur orðaði það.
Hljómsveitin mun sumsé starfa áfram og fór nýverið í hljóðver til að taka upp nokkur lög sem fá að hljóma á næstunni, þá mun bandið verða talsvert á ferðinni í hljómleikahaldi í sumar ásamt því að keppa í hinum magnaða popppunkti.
Hljómsveitin heldur kveðjutónleika fyrir Rögnvald Gáfaða á Græna Hattinum Akureyri 5. og 6. Júní n.k og má reikna með að bandið tjaldi öllu til en hljómsveitin hefur verið geysi vinsæl í heimabæ sínum um árabil.
Eftirlifandi meðlimir Hvanndalsbræðra eru:
Valur Hvanndal – trommur/söngur
Sumarliði Hvanndal – bassi/söngur
Pétur Hvanndal – gítar/mandolín/söngur
Valmar Hvanndal – Fiðla/Harmonikka/Trampolín




