Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi á Akureyri

Skrifað 23. júní 2009 klukkan 11:40 | Ingimar Björn | Íþróttir | Senda á Facebook |
AMÍ verður sett í sundlaug Akureyrar á fimmtudag. Myndin er af heimasíðu félagsins.

AMÍ verður sett í sundlaug Akureyrar á fimmtudag. Myndin er af heimasíðu félagsins.

Tæplega 300 keppendur frá 15 félögum eru skráðir til leiks á Aldursflokkameistaramóti Íslands í sundi, AMÍ. Mótið hefst í Sundlaug Akureyrar á fimmtudag og stendur í fjóra daga. AMÍ er eitt stærsta sundmót ársins, er hluti af mótadagskrá Sundsambands Íslands og haldið undir merkjum þess. Framkvæmdin er í höndum Sundfélagsins Óðins sem haldið hefur AMÍ nokkrum sinnum áður, síðast árið 2007. Mótssetning er kl. 20:00 á miðvikudagskvöld.

Að sögn Ástu Birgisdóttir, formanns Óðins, hefur AMÍ sérstakan sess í hugum sundfólks. “AMÍ setur endapunktinn á sundtímabilið og þarna er því mikil stemming. Fyrir krakkana er þetta er MÓTIÐ. Þau þurfa að ná tilteknum lágmörkum til að öðlast þátttökurétt og er mikil keppni að ná þeim. Það eitt að vinna sér þátttökurétt er því afrek út af fyrir sig;” segir Ásta.

Þátttökurétt hafa þeir sem eru 18 ára og yngri en keppendur eru flestur á aldrinum 11-18 ára. Með fylgja síðan þjálfarar, fararstjórar og foreldrar. “Fólk nefnilega notar tækifærið að gera úr þessu fjölskylduhátíð, kemur í útilegu og hefur gaman. Með einum sundmanni fylgir því gjarnan öll fjölskyldan og því megum við búast við talsverri fjölgun í bænum þessa daga. Þetta er eiginlega eina sundmótið með alvöru fjölskyldustemmingu, ekki síst þegar það er haldið hér fyrir norðan,” segir Ásta. Keppnisliðin gista í Brekkuskóla þar sem Óðinn býður upp á mat og gistingu. “Við getum boðið fyrsta flokks aðstöðu og það er alveg frábært geta haft gistinguna og matinn svona við hliðina á sundlauginni,” segir Ásta.

AMÍ er einnig stigakeppni á milli félaganna og hefur lið ÍRB úr Reykjanesbæ borið sigur úr bítum 5 undanfarin ár.

Rétt er að taka fram að Sundlaug Akureyrar er einnig opin fyrir almenning þótt mótið standi yfir. Keppnin fer fram í nýrri 25 m lauginni en hin laugin og önnur aðstaða verður opin fyrir sundlaugargesti.

Lokað fyrir athugasemdir.