KA etur kappi við topplið Hauka á Akureyrarvelli nú í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Haukamenn skorað flest mörk í deildinni, alls 13 mörk. Hins vegar höfðu KA menn fengið á sig langfæst mörk í deildinni, eða aðeins eitt mark. Því má með sanni segja að besta varnarlið 1. deildarinnar hafi fengið besta sóknarliðið í heimsókn.
Leikurinn byrjaði rólega þar sem Haukamenn voru ívið meira með boltann. Hafnfirðingar fengu gott tækifæri strax á 6. mínútu þegar Hilmar Geir Eiðsson fékk góða sendingu inn fyrir vörn heimamanna, komst upp að endamörkum og renndi boltanum út í teiginn. Þar var Úlfar Hrafn Pálsson mættur eins og hrægammur og skaut að marki, en KA menn náðu að bjarga í horn.
Fyrsta alvöru marktækifæri KA manna kom á 15. mínutu þegar þeir fengu dæmda aukaspyrnu á ákjósanlegum stað rétt utan vítateigs. Húsvíkingurinn Guðmundur Óli Jónsson átti þrumuskot úr aukaspyrnunni en blessunarlega fyrir Haukamenn fór spyrnan rétt yfir markið.
Sóknaraðgerðir Hauka voru mun markvissari í fyrri hálfleik og áttu þeir á köflum fína spretti. Miðjumenn KA manna áttu í erfiðleikum með að halda boltanum innan liðsins og gekk þeim erfiðlega að finna samherja í lappirnar frammi á vellinum til að færa liðið ofar á völlinn.
Heimamenn áttu þó nokkrar tilraunir samt sem áður. á 25. mínútu fékk David Disztl sendingu vinstra meginm inn fyrir vörnina. Hann átti sendingu á Guðmund Óla Jonsson sem var inni í teignum. Gumundur gerði vel að ná skoti að marki en skot hans á móti norðanáttinni fór yfir. Skotið var það fast að boltinn fór langleiðina út á Glerárgötu gegnt veitingastaðnum Greifanum.
Á 33. mínútu áttu Haukamenn hættulega sókn sem verður að skrifast á varnarmistök Norbert Farkas. Langur bolti kom inn fyrir vörn KA manna og var Farkas á undan Anda Janussyni í boltann. Norbert Farkast tók þá ákvörðun að reyna að tækla boltann í innkast en hitti ekki. Andri náði því til knattarins og sendi út fyrir teiginn þar sem Guðjón Pétur Lýðsson kom á öskrandi siglingu en skaut framhjá.
Síðari hálfleikur byrjaði afar rólega og gerðist lítið markvert fyrstu tuttugu mínúturnar annað en að Amir Mehica, markmaður Hauka fór af velli meiddur og í hans stað kom Kristinn Þór Garðarsson sem er uppalinn í hinu Hafnarfjarðarlinu, FH. Þetta er annar leikur hans á ferlinum í meistaraflokki. Í hálfleik gerðu KA menn eina breytingu á liði sínu. Þjálfarinn Dean Martin kom inn á fyrir Orra Gústafsson.
fyrsta marktækifæri seinni hálfleiks leit dagsins ljós á 66. mínútu, þá átti fyririliði KA, Andri Már Guðjónsson hörkuskot nokkuð utan vítateigs að marki Haukamanna. Skotið var þó ekki nógu hnitmiðað og rataði skotið ekki á rammann.
MARK. á 72. mínútu léku Dean Martin og Haukur Heiðar Hauksson vel saman. og komst Haukur inn fyrirbakvörð Haukamanna. Hann átti frábæra sendingu fyrir markið, milli varnar og markmanns og David Disztl átti ekki í erfiðleikum með að klára þetta frábæra færi. Heimamenn komnir með forystu
Eftir markið fjaraði leikurinn hægt og rólega út án þess að gestirnir næðu að ógna marki heimamanna. Þeir færðu sig þó aðeins framar á völlinn og héldu boltanum innan liðsins án þess þó að skapa sér almennileg marktækifæri. Ka menn eru vel að sigrinum komnir, voru traustir til baka og náðu góðum sprettum fram á við þegar þeir höfðu boltann.
Eftir leikinn eru KA menn komnir með 10 stig og vilja líklega blanda sér í toppbaráttuna í deildinni. Haukamenn hljóta að vera súrir með leik sinn í kvöld. Er þetta fyrsti tapleikur Hauka á tímabilinu.



