Fyrirliði Hauka: “Áttum að kála þeim í fyrri hálfleik”

Skrifað 11. júní 2009 klukkan 23:20 | | Fótbolti, Íþróttir | Senda á Facebook |
thorhallurdan

Þórhallur Dan Jóhannson (haukar.is)

Þórhallur Dan Jóhannsson, fyrirliði Hauka, var að vonum ósáttur eftir að liðið beið lægri hlut gegn KA-mönnum í kvöld á Akureyrarvelli. Þrátt fyrir að gestirnir hafi byrjað vel og verið sprækari aðilinn lengi framan af fyrri hálfleik náðu þeir ekki að setja mark sitt á leikinn.

“Við yfirspiluðum þá í fyrri hálfleik og áttum náttúrulega að klára leikinn. Við vorum klaufar þegar við vorum komnir upp við mark KA-manna, vorum að skjóta úr vondum færum og af löngu færi á köflum. Leikurinn jafnast svo í seinni hálfleik þar sem þeir fá eitt færi en við ekki neitt og þeir skoruðu. Við nýttum ekki færin og áttum að kála þeim í fyrri hálfleik. Þeir spiluðu leikinn bara vel og við áttum ekki svör við þeim. KA liðið á bara hrós skilið fyrir vel skipulagðan leik og góða spilamennsku”

Seinni hálfleikurinn var mun rólegri en sá fyrri. Í raun var aðeins eitt hættulegt færi í seinni hálfleik þegar Haukur Heiðar Hauksson og Dean Martin léku vel saman, Haukur komst inn fyrir vinstri bakvörð Haukamanna og átti frábæra sendingu inn í vítateiginn þar sem David Disztl kom í vel tímasett hlaup og átti ekki í vændræðum með að setja boltann í netið, óverjandi fyrir Kristinn Þór Garðarsson í marki Hauka. Dean Martin kom inn á í hálfleik í lið heimamanna. Aðspurður út í áhrif innkomu Dean Martin sagði fyrirliði Hauka:

“Já, vissulega. Dean Martin er auðvitað gríðarlega góður leikmaður sem tekur mikið til sín. Það var kannski það sem þá vantaði í fyrri hálfleiknum að hann kom inn á og stjórni leiknum. Hann er hjartað og lunga í þessu liði og við innkomu hans í leikinn eykst sjálfstraustið gríðarlega í leik KA-manna. Hann gerir einmitt vel í þessu marki, góður þríhyrningur sem hann býr til. KA á bara bara hrós skilið fyrir sinn leik og þessi þrjú stig eru þeirra. Hvort sem það er svo sanngjarnt eða ekki er annað mál en það er ekkert spurt að því.”

Eftir mark KA manna færðu Haukar sig ofar á völlinn og reyndu allt hvað þeir gátu við að skapa sér marktækifæri. Þeir voru mun meira með boltann síðasta stundarfjórðung leiksins en komust aldrei nálægt því að skora mark.

“Við vorum algjörlega hugmyndasnauðir í seinni hálfleik og gerðum ekkert til að reyna að jafna leikinn. Við höfum marga leikmenn sem geta breytt leiknum en í kvöld vorum við ótrúlega einhæfir í sóknaraðgerðum okkar”

KA menn eru nú komnir með tíu stig í deildinni, hafa aðeins fengið á sig eitt mark það sem af er sumri og ef áfram heldur sem horfir verða þeir í efri hluta deildarinnar þegar keppni lýkur í haust. Haukamenn sóttu ekki gull í greipar KA manna í kvöld. Haukar eru með 13 stig og deila efsta sætinu með liði Selfyssinga sem á leik til góða gegn Þórsurum á laugardaginn kemur

Athugaemdir