Foreldrar barna í Brekkuskóla æfir vegna ummæla eins kennara um samkynhneigð

09.02.12 09:53 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Akureyri vikublað greinir í dag frá mikilli reiði sem kraumar meðal foreldra barna í Brekkuskóla. Er það komið til vegna skrifa Snorra Óskarssonar kennara sem er leiðtogi Hvítasunnusafnaðarins, en  á bloggsíðu sinni skrifar Snorri  „Kjarninn í sjónarmiði evangelískra er sá að samkynhneigðin telst vera synd. Syndin er ekki Guðs ríkið og því óæskileg. Laun syndarinnar er dauði og því grafalvarleg.“

Þetta leggst illa í foreldra barna í skólanum og segja þeir m.a. þetta kornið sem hafi fyllt mælinn og hefur samkvæmt heimildum vikublaðsins komið fram sú krafa að Snorra verði vikið frá.  Jafnframt kemur fram í blaðinu að á fundi skólanefndar sl. mánudag hafi verið tekið fyrir mál sem merkt var trúnaðarmál en bara yfirskriftina ,,Hatursáróður“.

Logi Már Einarsson, arkitekt og foreldri barna í Brekkuskóla situr í skólanefnd (í viðtali við Akureyri vikublað). Var blogg Snorra til umfjöllunar á fundi skólanefndar? „Ég get ekki staðfest að blogg Snorra hafi verið til umfjöllunar á skólanefndafundi undir liðnum hatursáróður. Ég er einfaldlega bundinn trúnaði um hvað þar fór fram,” segir Logi í samtali við Akureyri vikublað.

 

Athugasemdir