Föstudaginn 10. febrúar hefst árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar í samstarfi við grunnskóla landsins. Söfnunin mun standa yfir til 8. mars og munu skólabörn úr 4.-6. bekk ganga í hús með söfnunarbauka frá ABC. Þessi söfnun, sem nú er haldin í 12. sinn, er mikilvæg fjáröflun fyrir ABC barnahjálp en fyrir afrakstur þeirra hafa verið byggðir fjölmargir skólar og heimili fyrir fátæk börn í þróunarlöndum.
Í fyrra tóku 2.696 börn úr 87 skólum þátt í söfnuninni og söfnuðust samtals 7.485.844 kr. Söfnunarfénu var ráðstafað til efirfarandi verkefna:
· Til að ljúka byggingu nýs skóla fyrir El Shaddai heimilið í Chennai á Indlandi en safnað var fyrir honum árið 2010.
· Til að kaupa skólaborð og bekki fyrir ABC skólana í Pakistan.
· Til að kaupa lóð og hefja byggingu heimavistarskóla fyrir götubörn í Nairobi í Kenya.
Í ár verður söfnunarfénu varið til halda áfram byggingu ABC skólans í Nairobi. Einnig verður byggður lítill skóli fyrir fátæk Masai börn sem búa á sléttunni við fjallið Kilimanjaro í Kenya. Þau þurfa að ganga langa og hættulega leið til að komast í næsta skóla svo brýnt er að koma upp skólastarfi nær heimilum þeirra. ABC starfið í Pakistan mun einnig fá sinn skerf til þess að halda áfram með byggingu heimavistarskóla fyrir 700 börn sem búa nú í bráðabyrgðarhúsnæði sem er bæði þröngt og lélegt.
Það er einlæg ósk ABC barnahjálpar að landsmenn taki vel á móti skólabörnunum með baukana sína!





