Dagur leikskólans er í dag 6. febrúar

06.02.12 08:59 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Í dag mánudaginn 6. febrúar er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja fólk til umhugsunar um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.

Dagur leikskólans er nú haldinn í fimmta sinn. Í tilefni dagsins hefur m.a. verið auglýst eftir gullkornum frá leikskólum landsins. Þau þurftu að vera lýsandi fyrir það nám sem leikskólabörn stunda og óskað var eftir mynd með. „Bestu“ gullkornin hafa verið valin á veggspjald/plakar og verður þeim dreift til leikskóla og sveitafélaga.
Auk þess var óskað eftir myndböndum með stuttum viðtölum við leikskólabörn um leikskólalífið. Dæmi um spurningar sem þau svöruðu: Hvað lærir þú í leikskólanum? Hvað gera leikskólakennarar og hvernig eiga góðir leikskólakennarar að vera? Myndböndin verða notuð við ýmis tækifæri og reynt að koma efni þeirra á framfæri í fjölmiðlum.
Leikskólar hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti.

Dæmi um hvað er gert hér í nágrenni Akureyrar

Pálmholt á Akureyri ætlar hengja listaverk barnana upp í strætó í tilefni af degi leikskólans.

Einnig mun leikskólakennari ásamt nokkrum börnum á Pálmholti afhenda Bæjarstjóra veggspjaldið/plakatið klukkan 11:30.

Naustatjörn á Akureyri skreytir gluggana í Bónus í Naustahverfi – tengist bæði Degi leikskólans og 150 ára afmæli Akureyrarbæjar.

Holtakoti á Akureyri verður með sýningu í bakarínu við Langholt. Listaverkasýningin er unnin úr heimilissorpi og f.l. Þessi efnivið var valinn af því að Akureyrarbær er framarlega í flokkunnarmálum.

Álfasteinn í Hörgársveit verður með opið hús vikuna 6. – 10. febrúar frá kl. 9 til 11 og 14 til 16.

Lundarsel á Akureyri verður með opið hús 6.feb frá kl. 9 til 11 og 13 til 15 – þar  sem afmæliskort til Akureyrar verða til sýnis fyrir gesti og gangandi, sömuleiðs verður myndband úr daglega starfinu yngstu barnanna vera til sýnis,

Iðavellir á Akureyri á samvinnu við foreldrafélagið að standa fyrir fjölskyldufjöri milli kl. 15:30 og 17:30. Börnin og starfsfólk leikskólans bjóða foreldrum/forráðamönnum í leikskólann og kynna hvað þau hafa verið að gera í vetur(eldri og yngri systkini einnig velkomin).  Foreldrar/forráðamenn koma með eitthvað gott á sameiginlegt hlaðborð en drykkir verða í boði leikskólans.

Kiðagil á Akureyri er með myndlistasýninginu á flugsafninu.

Sunnuból á Akureyri verður með opið hús milli klukkan 9.00-11.00 og 13.00-15.00 – Kynnt verður þemavinna um Hrafninn sem unnin hefur verið undanfarnar vikur.

Flúðir á Akureyri verður með sýningu í Hrísalundi

Tröllaborgir á Akureyri hélt uppá daginn á föstudag á heimasíðu leikskólans er m.a. að finna myndband sem þau settu á vefinn www.trollaborgir.akureyri.is/

Já það er óhætt að segja að úr nógu sé að velja á degi leikskólans.

Athugasemdir