Andri Snær Stefánsson handboltamaðurinn snjalli sem hefur leikið síðasta eitt og hálft árið með danska liðinu Odde Håndbold er nú á heimleið og mun leika með Akureyri það sem eftir lifir tímabilsins. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hversu mikill styrkur þetta er fyrir Akureyri að fá Andra heim í þeim átökum sem framundan eru í handboltanum. Andri Snær kemur heim um mánaðarmótin. Þetta kemur fram á vef Akureyri handboltafélags.




