Samfylkingin á Akureyri boðar til almenns félagsfundar mánudaginn 30. janúar kl. 20 í húsnæði félagsins, Lárusarhúsi v/Eiðsvallagötu 18.
Aðalumræðuefnið verður landsdómsmálið og til fundarins koma þingmenn Samfylkingarinnar í kjördæminu; Kristján L. Möller, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir. Sjá nánar á www.xsakureyri.isFundurinn var áður boðaður 2. febrúar en honum hefur nú verið flýtt.
Samkvæmt 10. gr. reglna um fundarsköp félagsins skulu tillögur og ályktanir hafa borist stjórn a.m.k. 1 sólarhring fyrir boðaðan fund.
Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri



