NEI RÁÐHERRA! sýnd í Hofi á Akureyri

26.01.12 08:00 | | Fréttir, Menning, Sýningar | Senda á Facebook |

Áhorfendasýning ársins og aðsóknarmestasýning landsins verður sýnd í Menningarhúsinu Hof eftir yfir um 70 uppseldar sýningar í Borgarleikhúsinu. Drepfyndinn farsi í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Í aðalhlutverkum eru Guðjón Davíð Karlsson, Sigurður Sigurjónsson og Hilmar Guðjónsson. Forsala hefst miðvikudaginn 1.febrúar kl. 10 í Hofi en fyrsta sýning er laugardaginn 3. mars, takmarkaður sýningarfjöldi er á Akureyri.Gamanleikritið Nei ráðherra! flyst til Akureyrar í marsmánuði verður seftir yfir 70 uppseldar sýningar í Borgarleikhúsinu. Sýningin er vinsælasta leiksýning landsins síðasta árið og mun hún snúa aftur á fjalir Borgarleikhússins eftir að hún hefur kætt leikhúsunnendur í Menningarhúsinu Hofi í mars. Nei ráðherra hlaut einróma lof gagnrýnenda og var valin áhorfendasýning ársins þegar Grímuverðlaunin voru afhent á síðasta ári. Hér er ferðinni drepfyndið verk úr smiðju Ray Cooney í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjórn er í höndum Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra Borgarleikhússins en hljómsveitin Baggalútur samdi tónlist verksins. Einvalalið leikara tekur þátt í sýningunni en Guðjón Davíð Karlsson (Gói), Lára Jóhanna Jónsdóttir, Hilmar Guðjónsson og Sigurður Sigurjónsson eru í burðarhlutverkum. Sýningarnar á Akureyri eru samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs, Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar en áskriftarkortagestum LA býðst afsláttur af miðum í fyrstu viku forsölunnar. Takmarkaður sýningarfjöldi er í boði vegna anna leikaranna.

Sagan. Ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sópað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þó aldrei dauðum manni – og það á hótelherbergi – með viðhaldinu – sem er innsti koppur í búri stjórnarandstöðunnar. Það stóð ýmislegt til í þessu hótelherbergi en ekki þetta! Hvað gera ráðherrar nú? Þeir hringja auðvitað í strangheiðarlegan og vammlausan aðstoðarmann sinn sem lendir í skítverkunum eins og venjulega. Það þarf að sjá um viðhaldið, fela verksummerki, losna við líkið, bera fé í útsmoginn þjón og síðast en ekki síst að halda öllu leyndu fyrir afbrýðisömum eiginmönnum og -konum.

 

Uppfærslan. Þessi drepfyndni gamanleikur kemur úr smiðju Ray Cooney konungs gamanleikjanna. Hann er Íslendingum að góðu kunnur en gamanleikirnir Með vífið í lúkunum, Tveir tvöfaldir og Viltu finna milljón? hafa allir notið vinsælda hér á landi. Nei, ráðherra (Out of Order) hlaut hin eftirsóttu Olivier-verðlaun sem besti gaman leikurinn í Bretlandi þegar verkið var frumsýnt. Verkið hefur slegið í gegn víða um heim en fer nú í fyrsta skipti á íslenskar leikhúsfjalir og er flutt í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar en hann hefur matreitt og kryddað marga af bestu gamanleikjum seinni ára hérlendis, m.a. Fló á skinni og Sex í sveit.

Sýningarnar á Akureyri: Sýningar á Nei ráðherra í Menningarhúsinu Hofi Akureyri verða: lau 3. mars kl. 19, lau 10. mars kl. 19 og lau 17.mars kl. 19. Leiksýningin verður sýnd á Akureyri í samstarfi Menningarhússins Hofs, Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar. Um þessar mundir kemur Borgarleikhúsið einnig að Gulleyjunni ásamt Leikfélagi Akureyrar. Sýningar á Gulleyjunni eru í Samkomuhúsinu á Akureyri í janúar, febrúar og mars. Sérstakt forsölutilboð á sýninguna verður dagana 1.-3. febrúar, nánari upplýsingar á www.menningarhus.is.

Aðstandendur Höfundur: Ray Cooney | Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson | Íslensk heimfærsla: Gísli Rúnar Jónsson | Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson | Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson | Tónlist: Baggalútur | Leikarar: Guðjón Davíð Karlsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Hilmar Guðjónsson, Bergur Þór Ingólfsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Þröstur Leó Gunnarsson

Allar nánari upplýsingar veitir: Heiðrún Grétarsdóttir markaðsfulltrúi Menningarhússins Hofs, heidrun@menningarhus.is, s: 8695292 og Hildur Harðardóttir markaðsstjóri Borgarleikhússins, hildur@borgarleikhus.is, s: 8978809.

Athugaemdir