Stúkan á Þórsvellinum, hver er staðan?

25.01.12 13:35 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Strax á haustdögum 2009 þegar haustrigningar fóru að gera vart við sig kom í ljós að nýja stúkan á Þórsvellinum væri hriplek. Vatn lak inn í stúkuna á annarri hæð hússins þar sem m.a. píludeild Þórs er með aðstöðu og alla leið niður í búningsklefa á jarðhæð, sem hafa orðið fyrir talsverðum skemmdum. Vatn hefur lekið inn í raflagnakerfi hússins og ollið talsverðum vandræðum. Menn hafa greint á allt frá upphafi hver beri ábyrgð. Það var svo fyrir réttu ári að bæjaryfirvöld ákváðu að kalla til dómkvadda matsmenn til þess að meta ástandið á mannvirkinu. En meðan á þessu öllu hefur staðið virðist sem að ekkert hafi verið gert í að stöðva lekann. Húsið lekur enn og skemmist og menn óttast í hvert sinn sem hlánar úti.  Menn velta því eðlilega fyrir sér hvað valdi því að nýtt mannvirki sem kostaði nokkur hundruð milljónir skuli ekki halda vatni. Og kannski enn meira umhugsunarefni sú staðreynd að menn skuli ekki einhenda sér í að stoppa lekann af svo húsið haldi ekki áfram að skemmast.
Hvað segir Sigús Ólafur Helgason framkvæmdastjóri Þórs og forstöðumaður íþróttasvæðis Þórs um stöðuna í dag? “Staðan er óljós.  Það eina sem ég veit er að það er fundur í lok mánaðarins.  Ég verð að benda á Guðríði hjá Fasteignum Akureyrarbæjar.  Það sem ég veit að það hefur ekkert gerst í viðgerðum” Hvað með skemmdir á húsinu? “Við höfum höfum komið í veg fyrir að lekið hefur í tól og tæki en mörg ljós og öryggiskerfi er illa farið, hurðir úr sér gengnar á miðhæðinni og gluggar á framhliðinni eru mjög illa farnir.  Þetta er sorgarsaga og við verðum að fá botn í það hvernig þetta verður fyrir sumarið” sagði Sigfús að lokum.

Guðríður Friðriksdóttir hjá Fasteignum Akureyrar sagði að staðan væri sú að um leið og veðuraðstæður leyfa verði farið í að laga mannvirkið. ,,Það þýðir ekkert að vera velta sér upp úr því lögfræði álitum heldur verði menn að einhenda sér í að laga húsið. Rífa þarf burt allar forsteyptu einingarnar sem stólarnir í stúkunni eru á og efni borið á til að freista þess að koma í veg fyrir meiri leka. Þá verður einnig ráðist í að gera við þær skemmdir á mannvirkinu sem hafa orðið af völdum lekans“.

En hver er orsök lekans? ,,Það vita menn ekki alveg með vissu sumir hafa nefnt að hugsanlega sé burðarvirkinu um að kenna, en það liggur ekki endanlega fyrir“.

Hvað áætla menn að kostnaðurinn verði? ,,Upphaflega var gert ráð fyrir því að þetta yrði á bilinu 12-15 milljónir en ef að líkum lætur gæti sá kostnaður orðið eitthvað hærri“.

Verður stúkan klár þegar knattspyrnuvertíðin byrjar í vor? Það er auðvitað lagt upp með að svo verði og við skulum vona að það gangi eftir“ sagði Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna að lokum.

 

Athugaemdir