Margt bendir til þess að orsök eldsins í verksmiðjunni Glófa í gær megi rekja til rafmagnsleysisins sem hrjáði bæinn í gærkvöldi. Þetta segir Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri, í samtali við mbl.is í morgun. Engu er þó búið að slá föstu í þeim efnum, en Lögreglan á Akureyri rannsakar nú orsök brunans. Eldurinn kom upp í prjónavél, á sama tíma og rafmagn komst á aftur í bænum.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn, og voru vörur og önnur verðmæti borin út til að bjarga þeim. Slökkviliðsmönnum yfirsást hinsvegar glóð í þaki hússins og blossaði eldurinn upp aftur skömmu síðar. Þurfti að rjúfa þak hússins til að komast að eldinum. Erfitt er að meta tjónið, en ljóst er að það er umtalsvert.


