Hörmungar af völdum manna eða náttúru virðast ekki hafa áhrif á komur skemmtiferðaskipa til Akureyrar í sumar. Komurnar eru fleiri en undanfarin ár, skipin stærri og ferðamannatímabilið lengra. Fyrsta skipið af 62 sem væntanleg eru kemur þann 20. maí, eftir tæpar tvær vikur, og bæjarbúar mega búast við því að sjá skipin á pollinum alveg fram til 1. október. Þetta er talsvert lengra tímabil en í fyrra, en þá kom fyrsta skipið í byrjun júní, og það síðasta um miðjan september. Þá voru skipin 58 talsins.
Pétur Ólafsson, markaðsstjóri Akureyrarhafnar, segir höfnina ekki endilega hafa átt von á því að komunum myndi fjölga, enda eru skipin að verða stærri og stærri. Akureyrarhöfn heldur áfram öflugu kynningarstarfi í samvinnu við aðrar hafnir og aðila í ferðaþjónustu og að sögn Péturs eru ekki merki um annað en að þróunin haldi áfram á þessa leið næstu ár.


