Íslandsmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna fór fram um helgina í Íþróttahöllinni á Akureyri. Fjölmennt var meðal áhorfenda og keppenda á Íslandsmótinu sem haldið var í fimmtánda skipti um Páskana í töluverðum snjóþunga. Snjókoma aðfararnótt laugardagsins, snjóflóð og ófærð settu strik í reikninginn fyrir nokkra keppendur. Allir nema tveir náðu þó að mæta til keppni þegar upp var staðið. Þetta Íslandsmót var um margt sérstakt þar sem öll þekktustu nöfnin í líkamsræktargeiranum mættust á sviði. Það stefndi því fyrirfram í spennandi úrslit.
Rannveig Kramer stóð uppi sem Íslandsmeistari í fitness kvenna, Gauti Már Rúnarsson varð Íslandsmeistari í fitness karla, Margrét Hulda Karlsdóttir varð Íslandsmeistari í módelfitness og Magnús Bess Júlíusson í vaxtarrækt. Nánar er fjallað um mótið á www.fitness.is


