Aprílgabb: Slökkvilið kallað að Hofi vegna vatnsleka í kjallara

Skrifað 01. apríl 2010 klukkan 14:51 | | Fréttir, Menning | Senda á Facebook |

Hof MenningarhúsSlökkvilið Akureyrar var kallað að menningarhúsinu Hofi á Akureyri rétt fyrir klukkan 9 í morgun, vegna leka í kjallara hússins. Ekki er ljóst hvað olli lekanum, en hann átti sér stað við suðurhluta kjallarans þar sem unnið hefur verið að jarðvegsskiptum vegna raka undanfarnar vikur. Að sögn slökkviliðs varð tjón minna en við hefði mátt búast, en slökkvilið var komið á vettvang um 10 mínútum eftir að lekinn varð.

Er erfitt að meta tjónið að svo stöddu en það gæti hlaupið á fimm til tíu milljónum króna. Búið var að stöðva allan leka rétt upp úr hádegi en búist er við að dæling úr kjallaranum standi fram eftir degi. Ljóst er að tjón hefði getað orðið miklu meira ef menningarverðmæti hefðu verið komin í kjallaran og má því telja það lán í óláni að svo var ekki. Ekki er búist við að lekinn valdi töfum á opnun hússins.

Uppfærsla: Hér var að sjálfsögðu um aprílgabb að ræða. Nokkrir lögðu leið sína að húsinu til að kanna hvort þar hefði myndast síki og þökkum við þeim fyrir forvitnina. Gleðilega páska.

Efnisorð: , , , ,

Athugaemdir