Klukkan 11 höfðu 941 eða um 7,25% kjósenda á Akureyri skilað inn atkvæði sínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave, en til samanburðar höfðu 8,29% kosið á sama tíma í alþingiskosningunum í fyrra. 12.985 eru á kjörskrá á Akureyri. Enn sem komið er mun betri kjörsókn á Akureyri en í Reykjavík.
Helgi Teitur Helgason, formaður kjörstjórnar, sagði í samtali við Akureyri.net að kjörsókn virðist ætla að verða meiri en búist var við og að kjörstjórnin hefði ekki vitað almennilega við hverju var að búast, miðað við umræðuna síðustu daga og vikur.
Kosið er í Verkmenntaskólanum líkt og í síðustu alþingiskosningum.



