Lokun Friðriks V: „Öndunarvélinni var bara kippt úr sambandi“

Skrifað 04. mars 2010 klukkan 13:20 | Jón Steinar | Fréttir | Senda á Facebook |
Mynd: Akureyri.net/Jón Steinar

Mynd: Akureyri.net/Jón Steinar

Veitingastaðnum Friðrik V var í gærkvöldi lokað, en staðurinn hefur verið starfandi á Akureyri í 9 ár. Eigandi veitingahússins, Friðrik Valur Karlsson, segir í viðtali við Akureyri.net að eftir hrunið hafi hallað undan fæti í rekstrinum og hafi eigendurnir ekki viljað draga úr gæðum staðarins, því hafi þessi ákvörðun verið tekin.

Aðspurður hvort að það sé ekki markaður fyrir fínni veitingastaði á Akureyri segir Friðrik: „Eigum við ekki að segja að þetta sé eins og knattspyrnulið, það hefur ekkert við striker að gera ef allir hinir eru varnarmenn.“ Hann segir að matarmenning bæjarins sé verr sett í dag. „Við erum allt í lagi, ekki frábær.“

Hann telur einnig áherslur bæjarstjórnar í þessum málum einkennilegar og vísar þá til þess að þeir „hlaupi til þegar að skyndibitakeðja sýnir áhuga á að opna stað í bænum en vilji ekkert fyrir þau gera.“

Friðrik segir aðdraganda lokunarinnar hafi verið langan og í raun hafi öndunarvélinni bara verið kippt úr sambandi. Hann segir sig og eiginkonu sína þurfa að bera þungann af fjárhagsvanda fyrirtækisins og segist hann vera óviss um hvort þau hjónin haldi húsinu.

Friðrik sér þó ekki eftir neinu og segist vera stoltur þrátt fyrir lokun staðarins, hann hafi haft þann draum fyrir 10 árum að opna heimsklassaveitingastað á Akureyri „og það tókst.“ Hann segist ekki vita hvað komi næst hjá sér eða starfsfólki sínu. „Þetta er ákveðið verkefni sem þarf að klára, en þetta er allt hæfileikaríkt fólk sem á ekki að eiga í neinum vandræðum með að fá vinnu.“

Lokað fyrir athugasemdir.