Fimmtugur karlmaður, Hans Alfreð Kristjánsson, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann stakk annan mann með hnífi ofarlega á brjóstkassann með þeim afleiðingum að hann hlaut þriggja sentimetra langan skurð. Árásin átti sér stað á Hafnarstræti á Akureyri í júní í fyrra. Auk fangelsisdómsins þarf maðurinn að greiða fórnarlambinu 400 þúsund krónur í miskabætur.
Hans Alfreð játaði brot sitt við yfirheyrslur en dró játninguna til baka fyrir dómi. Þá neitaði hann sakargiftum og sagði að um slysaverknað hefði verið að ræða. Dómarinn tók hins vegar undir með ákæruvaldinu og sakfelldi manninn.
Þegar Hans Alfreð framdi glæpinn var hann á reynslulaus eftir að hafa apflánað dóm fyrir morðtilraun árið 2006.
Dómur Héraðsdóms: www.domstolar.is


