Lára Stefánsdóttir skipuð skólameistari við utanverðan Eyjafjörð

Skrifað 02. mars 2010 klukkan 17:30 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Lára StefánsdóttirMenntamálaráðherra hefur skipað Láru Stefánsdóttur menntunarfræðing á Akureyri sem skólameistara nýs framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Stefnt er að opnun skólans í haust og hefur Lára þegar hafið störf. “Þetta er spennandi tækifæri til að búa til nýjan og skapandi skóla sem þjónar samfélaginu við Eyjafjörð,” sagði Lára í samtali við Akureyri.net í dag. Hún segir mörg verkefni framundan, enda þurfi að manna skólann af kennurum og nemendum fyrir haustið og móta námsáætlun. Lára var ráðin úr hópi níu umsækjenda.

Lokað fyrir athugasemdir.