Guðmundur Baldvin leiðir lista Framsóknar

Skrifað 24. janúar 2010 klukkan 11:06 | Örlygur Hnefill | Fréttir | Senda á Facebook |

Guðmundur Baldvin GuðmundssonGuðmundur Baldvin Guðmundsson hlaut 66 prósent gildra atkvæða í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í prófkjöri flokksins í gær. Petrea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti. Alls greiddu 1.106 einstaklingar atkvæði í prófkjörinu sem var opið öllum þeim sem kosningarétt hafa í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara þann 29. maí næstkomandi. Gild atkvæði voru 1.064 en auð og ógild 42.

Kosið var í sex efstu sætin og varð niðurstaða prófkjörsins þessi, eftir að tekið hafði verið tillit til óska frambjóðenda og laga Framsóknarflokksins um kynjakvóta:

1. sæti Guðmundur Baldvin Guðmundsson
2. sæti Petrea Ósk Sigurðardóttir
3. sæti Sigfús Karlsson
4. sæti Erlingur Kristjánsson
5. sæti Guðlaug Kristinsdóttir
6. sæti Sigríður Bergvinsdóttir

Lokað fyrir athugasemdir.