Ögrandi list og tilraunir til ritskoðunar

Skrifað 22. janúar 2010 klukkan 13:50 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Menning | Senda á Facebook |

Chris OfiliBandaríski fræðimaðurinn Steven C. Dubin heldur fyrirlestur um ritskoðun í list á Akureyri næstkomandi þriðjudag. Fyrirlesturinn á Akureyri er á vegum Listasafnsins á Akureyri en Dubin er hér á landi á vegum Fulbright stofnunar og námsbrautar í safnafræðum við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Dubin er prófessor í menningarstjórnun við Columbia Háskóla í New York og hefur einnig skrifað fjölda blaðagreina og bóka um umdeilda list. Hann hefur sérhæft sig í rannsóknum á sviði menningar, lista og safnafræða. Hann hefur beint sjónum sínum að ritskoðun og tjáningarfrelsi og bók hans um pólitíska list, Arresting Images: Impolitic Art and Uncivil Actions, vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 1992.

Dubin mun í fyrirlestrinum fjalla um myndlistarmenn og sýningar sem hafa verið mjög umdeildar og leitt til kröftugra átaka á síðari hluta 20. aldar og í upphafi 21. aldar. Söfn gegna mikilvægu hlutverki í þeim átökum sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum og annars staðar í heiminum gagnvart menningu og ritskoðun sem líkt hefur við stríðsástand um yfirráð menningar. Upprunalega voru söfn álitin eins konar hof eða helgistaðir en hafa þróast í þá átt að vera lýðræðislegur og spennandi vettvangur ætlaður almenningi þar sem tekist er á um ólík sjónarmið.

Fyrirlesturinn verður í Ketilhúsinu og hefst klukkan 17.15, þriðjudaginn 26. janúar. Fyrirlesturinn fer hann fram á ensku og er öllum opinn. Aðgangur er ókeypis.

Lokað fyrir athugasemdir.