Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld gamanleikinn 39 þrep, eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni þekktu kvikmynd Alfred Hitchcock, eftir samnefndri skáldsögu John Buchan. Þar takast fjórir leikarar á við 139 hlutverk, í hraðri og spennandi atburðarrás.
Leikararnir eru þau Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannson og Þrúður Vilhjálmsdóttir, en það er leikhússtýran María Sigurðardóttir sem leikstýrir. Hún segist spennt fyrir kvöldinu. “Það var fullt hús á prufunni í gær og það var þvílík gleði. Ég er bara mjög sátt og hlakka til að frumsýna í kvöld.”
Í verkinu segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar. Hann sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur.”
Sýningin er flókin, og skiptingar margar, en eftir þrotlausar æfingar er allt orðið klárt fyrir kvöldið. Að sögn Maríu eru fjórir leikarar á sviðinu, en fimmti leikarinn sé ekki síður áberandi, þó ekki sjáist hann mikið. “Fimmti leikarinn í sýningunni er eiginlega Gunnar Sigurbjörnsson, hljóðmaður. Hljóðmyndin í sýningunni er gríðarlega mikil og Gunnar á heiðurinn af henni. Það má því segja að hljóðmyndin sé fimmti leikarinn í sýningunni.”
39 þrep verða frumsýnd í kvöld eins og áður sagði, en næstu sýningar verða 9, 10, 14. og 15. janúar. Miða má nálgast á heimasíðu Leikfélagsins, leikfelag.is, eða í síma 4600-200.


