Þrettándagleði Þórs við Réttarhvamm í kvöld

Skrifað 06. janúar 2010 klukkan 10:14 | Örlygur Hnefill | Fréttir | Senda á Facebook |

JólasveinarÞrettándagleði Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri fer fram í kvöld klukkan 19:00 við Réttarhvamm og er hún haldin í samstarfi við Bónus og Akureyrarstofu. Það er ætíð mikið um dýrðir á Þrettándagleði Þórs sem á sér langa sögu. Álfakóngur og drottning, jólasveinar, tröll, púkar og alls kyns kynjaverur heilsa upp á gesti og kveðja jólin. Dagskráin hefst á slaginu sjö þegar kveikt verður í brennunni og stendur dagskráin í um klukkustund. Auk púka, trölla og ýmissa kynjavera mun söngvarinn Heimir Bjarni Ingimarsson mæta með gítarinn og Einar “einstaki” töframaður sýnir listir sínar. Líkt og í fyrra þá er Akureyringum og nærsveitarmönnum boðið frítt á þennan viðburð. Fólk er hvatt til þess að fjölmenna, eiga notalega stund og kveðja árið með viðeigandi hætti. Er þetta allra síðasta tækifærið til þess að hitta jólasveinanna áður en þeir halda aftur til fjalla.

Lokað fyrir athugasemdir.