Norðurorka hefur fyrir milligöngu Saga Capital Fjárfestingarbanka gert samning um sölu á 32% hlut sínum í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. til Landsvirkjunar.
Eftir kaupin á Landsvirkjun 64% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit.
Fyrir hlutinn eru greiddar 4,5 milljónir dollara að aflokinni áreiðanleikakönnun og 11 milljónir dollara til viðbótar þegar orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja, þó ekki fyrr en að tíu árum liðnum. Það var fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital sem hafði milligöngu um viðskiptin sem ráðgjafi og fulltrúi Norðurorku.
Þeistareykir hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í því skyni. Boraðar hafa verið 6 djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands.


