Framboð til prófkjöra streyma inn

Skrifað 06. janúar 2010 klukkan 18:39 | Ingimar Björn | Fréttir, Stjórnmál | Senda á Facebook |

Hermann Jón TómassonÞað styttist í prófkjör stjórnmálaflokkana fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en prófkjör Samfylkingarinnar fer fram 30. janúar næstkomandi. Verður það rafrænt og opið. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, tilkynnti í dag að hann ætli að gefa kost á sér í 1. sæti á lista flokksins. Þá hefur Jón Ingi Cæsarsson, formaður Samfylkingarinnar á Akureyri og varabæjarfulltrúi, gefið kost á sér í 3. til 5. sæti. Aðrir hafa ekki opinberað framboð. Kosið verður um fyrstu fimm sætin, en sérstök uppstillinganefnd mun raða upp í þau sæti sem eftir standa.

Lokað fyrir athugasemdir.