Mikill mannfjöldi í bænum í nótt

Skrifað 01. janúar 2010 klukkan 14:21 | Örlygur Hnefill | Fréttir | Senda á Facebook |

Áramót á AkureyriMikill fjöldi fólks fagnaði nýju ári og kvaddi hið gamla í miðbæ Akureyrar og í heimahúsum víðsvegar um bæinn í nótt. Að sögn lögreglu gekk nóttin vel og var með rólegra móti. Einhver lítilsháttar slagsmál áttu sér stað en ekki komu upp alvarleg mál.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnaði svo í morgun og gripu ýmsir tækifærið og skelltu sér á skíði til að fagna nýju ári. Kalt er í fjallinu og logn, en skíðasvæðið er opið til klukkan 16 í dag.

Lokað fyrir athugasemdir.