Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, var kjörinn Norðlendingur ársins 2009 í sérstakri áramótaútsendingu Ríkisútvarpsins í gær. Það voru hlustendur Útvarps Norður- og Austurlands sem kusu ráðherrann. Þrettán voru tilnefndir en Steingrímur hlaut nokkuð afgerandi kosningu.
Í öðru sæti í kjörinu var Þuríður Harpa Sigurðardóttir á Sauðárkróki, sem fór á árinu fyrst Norðurlandabúa í stofnfrumumeðferð á Indlandi vegna mænuskaða.



