Vel á þriðja tug snjóruðningstækja að störfum

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:21 | Örlygur Hnefill | Fréttir | Senda á Facebook |

Snjóruðningstæki að störfumVel á þriðja tug snjóruðningstækja hafa verið að störfum á götum Akureyrar undanfarna daga en sjó hefur kyngt niður hér í bænum síðan á þorláksmessu og mældist sjötíu og sex sentimetra nýfallinn snjór í gærmorgun. Mikill fjöldi fólks hefur verið í bænum yfir hátíðirnar og hefur verið nokkuð erilsamt hjá lögreglu. Lögregla þurfti að loka Leiruveginum rétt austan Akureyrar á aðfangadagskvöld vegna slæmrar færðar og ofankomu, en um 10 ökumenn festu bifreiðar sínar við Leirubrúna og tók um hálftíma að losa þær af staðnum.

Lokað fyrir athugasemdir.