Jólatréskógur sprettur upp inni í Minjasafninu

Skrifað 03. desember 2009 klukkan 13:09 | Örlygur Hnefill | Fréttir | Senda á Facebook |

JólatréJólatréskógur mun spretta upp nú um helgina í Minjasafninu á Akureyri. Íslendingar byrjuðu að skreyta heimili sín með jólatrjám á seinni hluta 19. aldar. Jólatré hafa í gegnum tíðina verið útfærð á margan hátt en yfirleitt var leitast við að hafa heimagerðu trén sem líkust grenitrjám. Bernskujólatrén, sem félagar úr Laufáshópnum hafa grafið uppúr pússi sínu eða gert eftirlíkingar af, setja jólalegan blæ á sýninguna fram til 20. desember.

Í aðventunni á safninu má sjá leikföng sem sjálfsagt hafa glatt margt barnshjartað einhver jólin fyrr á tíðum og þau bera með sér anda liðinna tíma í sýningunni Allir krakkar, allir krakkar – líf og leikir barna. Í henni má einnig sjá jólaskreytta skólastofu frá því í kringum 1950 og unglingaherbergi frá 7. áratug síðustu aldar eða kannski mætti segja herbergi krakka sem eru rétt að fylla fjórða tuginn og þeirra sem eru rétt kominn yfir á fimmtugsaldurinn. Jólaljós, jólalegar ljósmyndir og gömul jólakort ásamt fróðleik um drauma barna má auk þess sjá á Minjasafninu í aðventunni.

Minjasafnið á Akureyri er opið á laugardögum og sunnudögum kl 14-16 til 20. desemb

Lokað fyrir athugasemdir.