Þeir sem eru ekki komnir í jólaskap ættu að heimsækja vefsíðuna Jólastjarnan.net hið snarasta, en þar sendir útvarpsmaður Akureyrar, Sigurður Þorri Gunnarsson nú út jólalög allan sólarhringinn. Siggi Gunnars hefur verið ein aðalsprautan í útvarpsstöðinni Voice á Akureyri undanfarin ár og auk þess stýrt sjónvarpsþætti á N4 undanfarna mánuði. Nú er Siggi Gunnars hins vegar búinn að draga fram jólaplöturnar og spilar allt það besta af innlendum og erlendum jólalögum jafnt dag sem nótt.
“Þetta er þriðja árið sem stöðin er í loftinu á jólastjarnan.net en hún byggir á gömlum grunni,” segir Siggi en hann er á því að þetta ár sé það stærsta í sögu stöðvarinnar. Hann hefur fengið í lið með sér fjölda fólks allstaðar að af landinu og í áhöfninni á Jólastjörnunni eru nokkrir Akureyringar, meðal annars Pétur Guðjónsson sem starfaði á árum fyrr á Hljóðbylgjunni á Akureyri og síðar á Frostrásinni og Ljósvakanum. Siggi segir Jólastjörnuna vera sér mjög kæra. “Þetta er einungis gert til að gleðja aðra og mig sjálfan og ég get hiklaust sagt að þetta er það skemmtilegasta af öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem ég hef tekið að mér”.



