Samfylkingin á Akureyri stillir upp lista sínum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor með opnu rafrænu prófkjöri. Þetta var ákveðið á félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gærkvöldi.
Í prófkjörinu verður kosið um efstu fimm sætin á lista flokksins í kosningunum. Auk þess var á fundinum kosin uppstillingarnefnd sem ætlað er að stilla upp í sæti 6 til 22 á framboðslistanum að loknu prófkjöri.


